19 September 2023 15:53

Brot 4 ökumanna voru mynduð í Gvendargeisla í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gvendargeisla í vesturátt, á móts við Gvendargeisla 78, skammt frá Sæmundarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 26 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega heldur margir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar í Gvendargeisla er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.