19 September 2023 16:09

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, á móts við Borgarholtsbraut 54. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 46 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.