21 September 2023 12:07

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 190. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 160 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að léttskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.