13 September 2023 09:18

Brot 31 ökumanns var myndað á Vesturgötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í austurátt, á móts við Norðurbakka 23. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 109 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar í nágrenni grunnskóla (gönguleiðir) á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.