6 September 2023 10:04

Brot 2 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í suðvesturátt, að Egilsgötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.