31 Ágúst 2023 14:18

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Holtsvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Holtsveg í norðurátt, að Hellugötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 155 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Holtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.