31 Ágúst 2023 14:30

Gul viðvörun vegna veðurs hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið og gildir hún frá kl. 21 á föstudagskvöld til kl. 6 á laugardagsmorgun. Spáð er suðaustan hvassviðri og rigningu.

Fólk er því eindregið hvatt til þess að ganga frá og ferja lausamuni tímanlega til að forðast tjón. Hér er t.d. átt við  garðhúsgögn, trampólín, kerrur, ferðavagna, stillansa o.s.frv. Sérstök ástæða er líka til að nefna ruslatunnur, en þeim hefur fjölgað við mörg heimili að undanförnu. Einnig þarf að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón.

Þá er þeim tilmælum enn fremur beint til byggingarverktaka að ganga vel frá byggingar- og framkvæmdasvæðum sem þeir bera ábyrgð á.

Að síðustu er minnt á mikilvægi þess að fylgjast vel með veðurspám í bæði aðdraganda þessarar fyrstu haustlægðar ársins, sem svo hefur verið kölluð, en líka á meðan hún gengur yfir.