22 Ágúst 2023 15:38

Brot 65 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baugshlíð í suðurátt, við Lágafellsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 201 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar í Baugshlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.