23 Ágúst 2023 14:53

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Neshaga í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, að Hjarðarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar á Neshaga er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.