6 Júlí 2023 08:58

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í vesturátt, á móts við Tjaldanes í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 151 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 87 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.