26 Júní 2023 14:24

Mikið magn fíkniefna fannst um borð í skútu undan suðurströnd Íslands um helgina. Tveir voru handteknir um borð í skútunni og sá þriðji í landi. Þeir hafa allir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 4. júlí á grundvelli rannsóknahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Við aðgerðirnar naut embættið aðstoðar Landhelgisgæslunnar, tollgæslu, lögreglunnar á Suðurnesjum og sérsveitar ríkislögreglustjóra.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.