19 Júní 2023 10:30

Brot 119 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá föstudeginum 16. júní til mánudagsins 19. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í vesturátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á þremur sólarhringum fóru 22.605 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.