22 Maí 2023 11:05

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kaplaskjólsveg í norðurátt, við KR-völlinn. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 82 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Kaplaskjólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.