5 Maí 2023 10:07

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Þúsöld í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þúsöld í norðurátt, að Vínlandsleið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 113 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68. Þess má geta að einn þeirra sem var staðinn að hraðakstri á Þúsöld var á rafhlaupahjóli, en hraði hjólsins mældist 59. Hjólreiðamaðurinn var hjálmlaus, sem og farþegi sem var með honum á hjólinu.

Vöktun lögreglunnar á Þúsöld er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.