2 Maí 2023 16:31
Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Reykjavík dagana 16. til 17. maí eins og fram hefur komið. Ætla má að fundurinn hafi nokkur áhrif á daglegt líf íbúa á höfuðborgarsvæðinu þessa daga. Af öryggisástæðum verða götur í kringum Hörpu lokaðar fyrir umferð ökutækja á meðan á fundinum stendur en hægt verður að fara um svæðið gangandi og á hjóli. Þetta á hins vegar ekki við um svæðið næst Hörpu, sem verður lokað almenningi.
Einnig má gera ráð fyrir umferðartöfum um allt höfuðborgarsvæðið vegna aksturs sendinefnda í lögreglufylgd til og frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli á þessum dögum. Áhrifin verða hvað mest síðdegis á þriðjudeginum og miðvikudeginum. Á heimasíðu Stjórnarráðsins má sjá kort af svæðinu sem verður lokað fyrir umferð á meðan á fundinum stendur, auk upplýsingasíðu vegna götulokana.
Von er á upplýsingum um ráðstafanir fyrir hreyfihamlaða.
Íbúar sem eiga lögheimili og bílastæði innan svæðisins geta haft samband á infodep@utn.is.