24 Apríl 2023 10:44

Skráð voru 727 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í mars og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir mars 2023.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningar um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um 23 prósent fleiri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 106 tilkynningar um ofbeldisbrot í mars. Tilkynningar um heimilisofbeldi fækkaði á milli mánaða og fóru úr 66 tilkynningum í febrúar í 53 tilkynningar í mars. Það sem af er ári hafa borist um 14 prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan.

Alls bárust 20 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í mars og fjölgaði þessum beiðnum töluvert á milli mánaða.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða og voru tvö stórfelld fíkniefnabrot skráð í mars. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fækkaði.

Í janúar voru skráð 746 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um eitt prósent fleiri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.