21 Apríl 2023 10:51

Fjórir eru í haldi Lögreglunnar höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á þrítugsaldri í Hafnarfirði í gær. Upphaf málsins var að tilkynning barst lögreglu á tólfta tímanum í gærkvöld um átök á bifreiðastæði við verslunina Fjarðarkaup á Hólshrauni. Lögreglan hélt þegar á vettvang og fann þolandann, sem var fluttur á slysadeild og úrskurðaður þar látinn skömmu síðar. Í kjölfarið voru fjórir aðilar handteknir í tengslum við málið.

Rannsóknin er á frumstigi og ekki verða veittar frekar upplýsingar um málið að svo stöddu.