22 Mars 2023 16:38
Brot 45 ökumanna voru mynduð á Réttarholtsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Réttarholtsveg í norðurátt, að Langagerði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.
Vöktun lögreglunnar á Réttarholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.