27 Mars 2023 12:04

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Laugavegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugaveg í vesturátt, á móts við Hátún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 284 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Laugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.