24 Nóvember 2022 08:52
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra verða við æfingar fyrir hádegi í Kópavogi í dag, fimmtudag. Af þeim sökum verður meiri umferð ökutækja lögreglu á svæðinu en ella.
Íbúar/vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda um leið og þeim er þökkuð tillitssemin.