21 Október 2008 12:00

Þrír karlar á aldrinum 17-28 ára hafa verið úrskurðaðir í farbann til 2. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir, sem eru allir af erlendu bergi brotnir og sátu í gæsluvarðhaldi um tíma, voru handteknir í Kópavogi fyrr í mánuðinum en þeir eru grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefna. Um er að ræða tæplega hálft kíló af amfetamíni og rúmlega eitt kíló af marijúana en tollyfirvöld fundu efnin í sendingu sem kom til landsins frá Póllandi.