31 Október 2008 12:00
Brot 242 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 826 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er nú leyfður 50 km hámarkshraði sökum framkvæmda sem standa yfir. Fjörutíu og tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 84.
Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í eftirliti með hraðakstri við vinnusvæði í umdæminu.
Frá Reykjanesbraut. Þrátt fyrir góðar merkingar eru margir sem virða þær að vettugi.