12 Apríl 2022 11:29
Þann 7. apríl síðastliðinn var haldinn fundur um stafrænar áskoranir frambjóðenda í aðdraganda kosninga.
Erindi fluttu Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, Gyða Ragnheiður Bergsdóttir, lögfræðingur hjá Persónuvernd, Skúli Bragi Geirdal, verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd, Arnar Stefánsson, lögfræðingur hjá Fjarskiptastofu, María Rún Bjarnadóttir, verkefnastjóri hjá ríkislögreglustjóra og Bryndís Bjarnadóttir, sérfræðingur í netöryggissveit Cert-IS. Fundarstjóri var Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar.
Fjarskiptastofa, Fjölmiðlanefnd, Landskjörstjórn, lögreglan, netöryggissveitin CERT-IS og Persónuvernd stóðu að þessum sameiginlega rafræna fundi.
Fundurinn var tekinn upp og má nálgast upptökuna hér:
Kynningar fyrirlesara
- Hvernig á að halda samfélagsmiðlum öruggum? Bryndís Bjarnadóttir, sérfræðingur í netöryggissveit Cert-IS
- Stafræn brot, María Rún Bjarnadóttir, verkefnastjóri hjá ríkislögreglustjóra
- Óumbeðin fjarskipti í aðdraganad kosninga, Arnar Stefánsson, lögfræðingur hjá Fjarskiptastofu
- Upplýsingaóreiða og Ad Library, Skúli Bragi Geirdal, verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd
- Notkun frambjóðenda á samfélagsmiðlum fyrir sveitastjórnarkosningar 2022, Gyða Ragnheiður Bergsdóttir, lögfræðingur hjá Persónuvernd
- Landskjörstjórn og ný kosningalög, Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastýra Landskjörstjórnar