23 Febrúar 2022 17:19
Eftir ríkisstjórnarfund í dag bárust þau tíðindi að öllum sóttvarnartakmörkunum verði aflétt aðfaranótt föstudags, innanlands og á landamærum.
Í kjölfarið munu breytingar gerðar hjá HSA á fyrirkomulagi sýnatöku vegna COVID-19. Fyrkomulagið verður þannig:
- Einungis hraðgreiningarpróf verða í boði fyrir almenning.
- Tíma í hraðgreiningarpróf skal panta í gegnum heilsuvera.is
- Jákvætt hraðgreiningarpróf nægir sem greining á Covid-19.
- Jákvæð greining í heimaprófi skal staðfest í hraðgreiningarprófi hjá heilsugæslu eða einkafyrirtækjum (sem skrá í sjúkrasöguna).
- PCR próf verða ekki lengur í boði fyrir almenning.
- Ekki verður lengur krafa um staðfestingu smits með PCR prófi.
- PCR próf verður eingöngu gerð að ábendingu læknis vegna alvarlegra einkenna Covid-19.
- PCR próf verða gerð fyrir þá sem þurfa þau vegna ferða erlendis og þá gegn gjaldi.
- Einangrun smitaðra er ekki skylda, en tilmæli er um 5 daga einangrun frá sóttvarnayfirvöldum.
- Einkennalítið smitað fólk getur mætt til vinnu en fari eftir leiðbeiningum um smitgát í 5 daga.
Frekari upplýsingar má finna á vef HSA, – Breytingar á rannsóknum til greiningar á COVID-19 (hsa.is)
Aðgerðastjórn óskar íbúum til hamingju með þessi tíðindi en áréttar sem fyrr mikilvægi þess að við förum varlega meðan staðan í umdæminu er viðkvæm og smit mörg. Minnt skal í því sambandi á að grímuna er enn gott að eiga og nota þegar við umgöngumst viðkvæma hópa og einstaklinga.