29 Apríl 2008 12:00
Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tveir voru stöðvaðir á föstudag, fimm á laugardag, sjö á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Tólf voru teknir í Reykjavík og þrír í Hafnarfirði. Þetta voru þrettán karlar á aldrinum 17-50 ára og tvær konur, 24 og 66 ára. Sex karlanna eru á þrítugsaldri, tveir á fimmtugsaldri, einn á sextugsaldri og fjórir undir tvítugu. Þess má geta að sá yngsti í hópnum fékk ökuskírteinið í hendurnar fyrir fáeinum vikum.
Um helgina tók lögreglan einn ökumann sem var undir áhrifum fíkniefna. Um var að ræða karl á þrítugsaldri en sá var stöðvaður í Reykjavík aðfaranótt mánudags.