21 Júní 2021 10:53
Brot 83 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 625 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Átta óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 117.
Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að súld var á meðan hraðamælingunni stóð.