22 Febrúar 2021 13:58
Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra:
- Óvissustigi aflýst við Jökulsá á Fjöllum
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra og Veðurstofu Íslands, hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna vegna krapastíflu og flóðahættu við Jökulsá á Fjöllum.
Í síðustu viku hefur vatnshæð í Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði farið lækkandi úr um 420 cm í 300 cm, krapinn er byrjaður að bráðna og vatn farið að komast greiðlega niður árfarveginn.