11 September 2020 13:02
Brot 79 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 9. september til föstudagsins 11. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tveimur sólarhringum fóru 13.670 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 150. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.