28 Júlí 2020 09:54
Brot 65 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 23. júlí til mánudagsins 27. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á fjórum sólarhringum fóru 23.438 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112. Sex ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.