14 Desember 2006 12:00
Lögreglunni í Reykjavík bárust nokkrar tilkynningar um slys á fólki í gær. Um miðjan dag datt karlmaður á áttræðisaldri í Mosfellsbæ. Óttast var að hann væri fótbrotinn en maðurinn var fluttur á slysadeild. Síðdegis féll sjö ára stúlka innandyra í Breiðholti en hún var að stíga dans með vinum sínum. Stúlkan missti eina tönn og önnur losnaði.
Undir kvöldmat datt kona á miðjum aldri í útjaðri umdæmisins. Talið var að hún væri handleggsbrotin en kona kaus að koma sér sjálf á slysadeild. Og undir miðnætti lentu tveir knattspyrnukappar á þrítugsaldri í samstuði í Egilshöllinni. Annar var fluttur á slysadeild en hinn kaus að bíða átekta og ætlaði sjálfur á slysadeild ef ástandið versnaði.