20 Desember 2006 12:00
Þrjár af fjórum almannavarnarnefndum í Árnessýslu funduðu á lögreglustöðinni á Selfossi kl. 11:30. Á fundinum sátu einnig fulltrúar Vatnamælinga og almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Fyrir liggur að vatnshæð á mælum við Fremstaver hefur ekki fallið og má búast við miklu rennsli í Hvítá og Ölfusá enda mikið vatn í hliðarám. Veðurspá gerir ráð fyrir mikilli rigningu næstu daga.
Íbúar og sumarhúsaeigendur í Árnessýslu eru hvattir til að gæta að eignum sínum. Eigendur búsmala eru jafnframt hvattir til að gæta að því að ekki sé hætta á að hann verði innlyksa.
Frekari upplýsingar verða gefnar á vef lögreglunnar ( www.logreglan.is ) og í fréttatímum fjölmiðla eftir því sem þurfa þykir. Jafnframt er fólki bent á upplýsingavef vegagerðarinnar ( www.vegagerdin.is ) og upplýsingasíma 1777 þar sem hægt er að fá upplýsingar um færð á vegum.