6 Apríl 2020 18:03
Brot 46 ökumanna voru mynduð á Nýbýlavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nýbýlaveg í vesturátt, á móts við Nýbýlaveg 56. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 401 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.
Vöktun lögreglunnar á Nýbýlavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.