23 Mars 2020 17:07
Brot 68 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 441 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 106.
Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.