4 Febrúar 2020 15:26
Brot 50 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 220. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 76 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 66%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.
Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.