23 Janúar 2020 13:53
Um síðustu helgi tókst svindlurum að koma nokkuð af fölsuðum evruseðlum í umferð. Aðferðin sem þeir beittu var að fara með háa seðla, 100 og 200 evrur og versla lítið eitt með þeim. Þeir herjuðu einna helst á sólarhringsverslanir, leiktækjasali og leigubíla. Þetta var hópur sem fór víða.
Svindlararnir fóru stuttar ferðir með leigubílum, eða keyptu sígarettur og smávörur en fengu svo afgang í íslenskum krónum. Þannig tókst þeim að verða sér úti um talsverða peninga.
Fljótt á litið eru þetta sambærilegir seðlar evrum. En þeir standast enga nánari skoðun ef menn vita að hverju á að leita. Svo virðist sem að svindlararnir hafi verið með búnt af fölskum seðlum sem hægt er að kaupa í Rússlandi.
Rannsókn lögreglu í þessu máli miðar vel áfram.
Hér fylgja myndir og skýringar á því hvernig má greina þessa seðla frá alvöru seðlum: