28 Desember 2019 10:00
Nú þegar áramótin eru fram undan er ekki úr vegi að rifja upp nokkur mikilvæg atriði sem snúa að skoteldum, bálköstum og brennum. Í reglugerð um skotelda segir t.d. að á því tímabili sem almenn notkun skotelda er leyfð, 28. desember til 6. janúar, er meðferð þeirra þó alltaf bönnuð frá kl. 22.00 til kl. 10.00 daginn eftir að undanskilinni nýársnótt. Óheimilt er að breyta á nokkurn hátt skoteldi þannig að hann hljóti aðra eiginleika en framleiðandi hans ætlaðist til. Við meðferð og vörslu skotelda skal ítrustu varúðar gætt og ætíð farið eftir skráðum leiðbeiningum. Við brennu og í næsta nágrenni við hana er öll meðferð flugelda og annarra skotelda sem hætta stafar af vegna ferils þeirra eftir tendrun bönnuð. Þar er aðeins leyfilegt að nota stjörnuljós og blys, þó ekki skotblys.
Þá er sömuleiðis gott að vita að stærð og umfang á bálkesti skal takmarka við brennutíma, þ.e. að góður logi standi ekki lengur en skemmtan við brennu, eða um 4 klst. Séð skal til þess að ekki logi lengur í brennu en í 14 klst. Lítil brenna má að jafnaði ekki vera nær íbúðarbyggð en 100 metrar og stór brenna ekki nær en 300 metrar. Engin brenna má vera nær matvælaframleiðslu og öðrum viðkvæmum rekstri en 400 metrar. Bálköst skal ekki staðsetja þar sem hætta er á að eldur eða neistaflug geti kveikt í gróðri, t.d. sinu.
Að síðustu vill Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetja alla til að nota þar til gerð hlífðargleraugu þegar flugeldar, bálkestir og brennur eru annars vegar.