28 Nóvember 2019 17:17
Í síðustu viku slösuðust sjö vegfarendur í sjö umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 17. – 23. nóvember, en alls var tilkynnt um 42 umferðaróhöpp í umdæminu.
Sunnudaginn 17. nóvember kl. 15 var bifreið ekið austur Salaveg að vegamótum Arnarnesvegar og á létt bifhjól, sem kom þvert yfir veginn. Ökumaður bifreiðarinnar sagðist ekki hafa séð bifhjólið vegna sólarblindu, en ökumaður bifhjólsins, sem var ekki með hjálm, sagðist ekki hafa náð að stöðva vegna hálku. Síðarnefndi ökumaðurinn var fluttur á slysadeild.
Mánudaginn 18. nóvember kl. 10.55 missti ökumaður stjórn á bifreið sinn á Borgavegi, á móts við Smárarimatorg, með þeim afleiðingum að bíllinn hafnaði á umferðarmerki við hægri vegbrún og valt síðan á toppinn utan vegar. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild.
Þrjú umferðarslys voru tilkynnt miðvikudaginn 20. nóvember. Kl. 16.23 var bifreið ekið aftan á aðra á Breiðholtsbraut við Stöng. Ökumaður fremri bifreiðarinnar þurfti að hægja á sér í mikilli umferð og sá sem á eftir kom náði ekki að bregðast við. Ökumaður fremri bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild. Kl. 17.16 varð árekstur á Digranesvegi, við vegamót að Digraneskirkju, þegar ökumaður bifreiðar á norðurleið ók yfir á öfugan vegarhelming og á bifreið sem var ekið suður götuna. Tjónvaldurinn er grunaður um fíkniefnaakstur. Farþegi í annarri bifreiðinni var fluttur á slysadeild. Og kl. 18.11 var ekið á reiðhjólamann á gangbraut við Lindartorg. Ökumaðurinn ók reiðhjólmanninum, sem var með hjálm og áberandi endurskinsmerki, á slysadeild, en starfsmenn þar tilkynntu lögreglu um slysið.
Fimmtudaginn 21. nóvember kl. 17.13 var bifreið ekið á létt bifhjól á Borgavegi við Strandveg. Ökumaður bifhjólsins, sem var ekki með hjálm og hjólið ljóslaust og án skráningarmerkja, fór af vettvangi en fannst skömmu síðar. Honum var fylgt til síns heima og aðstandandi fór síðan með hann á slysadeild. Óljóst er um eignarhaldið á bifhjólinu og var það því haldlagt.
Föstudaginn 22. nóvember kl. 14.27 varð tveggja bíla árekstur á gatnamótum Nýbýlavegar og Laufbrekku. Annarri bifreiðinni var ekið austur Nýbýlaveg og hinn vestur Nýbýlaveg, en báðir ökumennirnir hugðust beygja á gatnamótunum og aka síðan Laufbrekku í suður. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild.
Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög.