6 Júlí 2006 12:00
Lögreglan í Reykjavík rannsakar nýlegt mál þar sem verulegri fjárhæð var stolið í gegnum netbankaaðgang einstaklings og hún millifærð á reikning erlendis. Rökstuddur grunur er um að við verknaðinn hafi verið notuð tölvuveira sem tengist fjölda SMS-skilaboða sem landsmenn fengu send á farsíma sína frá erlendri stefnumótasíðu í júnímánuði.
Ef farið var eftir þeim leiðbeiningum, sem var að finna í þessum skilaboðum, var hætta á að tölva viðkomandi smitaðist með svokölluðum bakdyrum. Við það geta óviðkomandi aðilar mögulega nýtt sér tölvuna án vitneskju eiganda hennar og fylgst jafnframt með innslætti leyniorða inn á öruggar síður eins og netbanka.
Þeir sem kynnu að hafa farið eftir þessum leiðbeiningum eru hvattir til að yfirfara viðkomandi tölvur með veiruvarnarhugbúnaði og kanna jafnframt hvort þær hafi nýjustu öryggisuppfærslur á stýrikerfum.