19 Janúar 2006 12:00
Kl.16:19 í dag barst Neyðarlínunni tilkynning um umferðarslys á Hnífsdalsvegi. Fólksbifreið lenti út af veginum og hafnaði í sjónum. Slökkvilið, lögregla og björgunarsveitir voru sendar á vettvang. Aðstæður björgunaraðila á vettvangi voru erfiðar. Ökumaður, sem virðist hafa verið einn í bifreiðinni, var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði alvarlega slasaður.