24 Ágúst 2005 12:00
Lögreglustjóraembættið í Reykjavík boðar blaðamenn til fundar fimmtudaginn 25. ágúst nk. kl. 14:00 í fundarsal á 1. hæð lögreglustöðvarinnar að Hverfisgötu 113. Kynntar verða niðurstöður nýrrar rannsóknar á dreifingu ofbeldisbrota á svæði 101 Reykjavík, miðborgin, á árunum 2000 og 2004. Mjög athyglisverðar niðurstöður koma fram í skýrslunni. Rannsóknina vann Bogi Ragnarsson, félagsfræðingur fyrir embættið. Eftir fundinn verður skýrslan sett á heimasíðu embættisins.
Ingimundur Einarson, varalögreglustjóri