10 Júní 2005 12:00
Á þriðja tímanum í nótt varð umferðaróhapp í Dýrafirði þegar erlendur ökumaður missti stjórn á bílaleigubifreið sem hann ók. Bifreiðin lenti út af veginum og fór a.m.k. eina veltu. Ökumaðurinn sagðist hafa fipast þegar lamb hljóp inn á veginn í veg fyrir hann. Ökumaðurinn var með öryggisbelti spennt og sakaði ekki, en bifreiðin er mjög mikið skemmd.
Á sjötta tímanum í morgun varð annað umferðaróhapp rétt fyrir innan Flateyri í Önundarfirði. En þá valt lítil fólksbifreið út af veginum og fór a.m.k. tvær veltur. Ökumaður, sem var einn í bifreiðinni, var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði, en reyndist ekki alvarlega slasaður. Hann er grunaður um að hafa tekið bifreiðina ófrjálsri hendi og ekið undir áhrifum lyfja. Þá var ökumaðurinn með útrunnin ökuréttindi.
Nú í morgun var tilkynnt um að brotist hafi verið um borð í bát sem lá við bryggju á Ísafirði og þaðan stolið DVD spilara. Slíkur spilari fannst í umræddri bifreið, er fór út af veginum í Önundarfirði. Viðkomandi ökumaður er grunaður um að hafa stolið þessu tæki.