28 Júlí 2003 12:00
Föstudaginn 25. júlí lauk Rósamunda Jóna Baldursdóttir varðstjór í lögreglunni á Ísafirði námskeiði, þar sem hún fór með hundinn Dofra til Reykjavíkur, en það var liður í þjálfun hans sem leitarhundur fíkniefna. Um nokkurra ára skeið hefur verið slíkur hundur í Bolungarvík, Nökkvi. Nökkvi karlinn var orðinn gamall og þreyttur og varð úr að hann fengi að hvíla sig á lögreglustarfinu. Dofri er nú kominn í hans stað á svæðinu og mun verða til reiðu fyrir embættin á Vestfjörðum. Dofri stóð sig mjög vel í lokaprófinu og hlaut einkunnina A í öllum greinum. Sumsé orðið dúx á menntaskólamáli. Dofri er boðinn velkominn í „lögregluna“ á Ísafirði og okkur hlakkar til samstarfsins við hann.