22 Október 2012 12:00
Fréttatilkynning frá lögreglunni á Vestfjörðum mánudaginn 22. október 2012.
Klukkan 03:43 er lögreglumenn sem á vakt voru á Ísafirði, sinntu útkalli vegna skemmda og ölvunarláta í bænum, var brotist inn á lögreglustöðina . Einn maður var þar að verki. Hann fór beint í bílgeymslu lögreglunnar, tók þar jeppabifreið lögreglu og ók honum út úr bílgeymslunni og um nokkrar götur í bænum. Talsverð hálka var á götum bæjarins. Af vegsummerkjum að dæma ók hann mjög ógætilega um bæinn og endaði akstur sinn á gangstíg í Miðtúni. Lögreglubifreiðin er mikið skemmd eftir akstur hans. Skömmu síðar handtóku lögreglumenn hann rétt innan við Miðtúnið á Ísafirði. Þessi maður var á ferðinni um bæinn í nótt og hafði lögreglan afskipti af honum. Lögreglan veit að maðurinn var inni á Kirkjubólshlíð skömmu fyrir atburðinn. Þaðan hefur hann fengið far til Ísafjarðar. Lögreglan leitar að vitnum . Hver sá sem getur veitt einhverjar upplýsingar um ferðir mannsins eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögregluna á Ísafirði í síma 450 3731.