18 Október 2017 13:32
Brot 98 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 80. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 133 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 74%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 49 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrjátíu og níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 66.
Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á með hraðamælingunni stóð.