5 September 2017 16:11
Brot 22 ökumanna voru mynduð í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarberg í vesturátt, við Setbergsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 75 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.
Vöktun lögreglunnar í Hlíðarbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.