11 Apríl 2016 17:02
Brot 34 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í vesturátt, að Karlabraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 224 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.
Vöktun lögreglunnar á Vífilsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.