3 Október 2007 12:00
Strokufangarnir frá Litla-Hrauni fundust um kl. 11:00 í húsi við Grettisgötu í Reykjavík. Lögrelgumenn á höfuðborgarsvæðinu fundu stolnu bifreiðina á Grettisgötu skammt frá húsi sem vitað er að brotamenn leita í. Lögreglumennirnir bönkuðu uppá í húsi því og þar fundu þeir fangana og handsömuðu. Þeim verður komið í hendur Fangelsimálastofnunar.