21 Maí 2007 12:00
Rúmlega tvítugur karlmaður var dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur en hann var ákærður fyrir umferðarlaga- og hegningarlagabrot. Maðurinn fór ekki að fyrirmælum lögreglumanns vegna umferðarstjórnunar um tímabundið akstursbann á Miklubraut vegna umferðarslyss og ók bifreið þar of hratt miðað við aðstæður. Hann ók viðstöðulaust um slysavettvanginn, þar sem lögreglumenn og hjálparlið voru að störfum, og þannig stofnaði maðurinn lífi eða heilsu þriggja nafngreindra lögreglumanna, eins slökkviliðsmanns og starfsmanns Reykjavíkurborgar á ófyrirleitinn hátt í augljósan háska, en þeir gátu með naumindum forðað sér frá bifreið hans.
Smellið hér til að lesa dómsorð.