1 Júlí 2015 22:48
Brot 129 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, við Grafarholtsveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.214 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Nítján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 132.
Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.