26 Janúar 2015 15:33
Eins og fyrri vika var frekar rólegt hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku og engin alvarleg mál sem upp komu. Rólegt var yfir skemmtanahaldinu um helgina og fáir sem voru á öldurhúsum bæjarins.
Skömmu fyrir hádegi þann 19. janúar sl. fékk lögreglan átta tilkynningar um að þakplötur og klæðningar væru að losna af húsum hér í bæ, en töluvert suð-austanhvassviðri gekk þá yfir eyjarnar. Ekki varð þó mikið tjón í veðurhamnum og engin slys á fólki.
Að morgni 22. janúar sl. var lögreglu tilkynnt um vinnuslys í Skipalyftunni en þarna hafði starfsmaður Skipalyftunnar verið að fara niður af tanki í stiga en missteig sig eitthvað og féll úr stiganum. Maðurinn mun hafa lent á vinstri hlið og er talið að hann hafi brotnað á mjöðm. Fallið var um 2 metrar.
Eftir hádegi þann 23. janúar sl. var lögreglu tilkynnt um tvo árekstra sem rekja má til hálku sem skyndilega skall á götum bæjarins. Ekki var um alvarleg óhöpp að ræða og engin slys á fólki.